Um Heimilistæki | HT.is | HT.is

Um Heimilistæki

Heimilistæki hefur um langt árabil verið leiðandi í innflutningi og sölu á raf- og heimilistækjum. Fyrirtækið var stofnað 22.september 1962 og varð því 60 ára á árinu 2022. Stórverslun Heimilistækja flutti haustið 2007 eftir langa dvöl við Sæbrautina sem nú heitir Guðrúnartún og er nú til húsa á Suðurlandsbraut 26, þar sem Sigtún var eitt sinn til húsa. Auk verslunar í Reykjavík eru fjórar verslanir á landsbyggðinni á Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjanesbæ.

Markmið Heimilistækja er að bjóða upp á framúrskarandi vöruúrval sambærilegt því sem gerist í stærstu verslunum erlendis en á sama tíma að veita mjög góða og persónulega þjónustu. Með þetta að leiðarljósi var vefur Heimilistækja hannaður, og er mikið lagt í að allar upplýsingar, verð og myndir séu aðgengilegt á vefnum og er hann uppfærður oft á dag. Allar vörur Heimilistækja eru til sýnis á vefnum.

Heimilistæki eru með umboð fyrir mörg þekktustu vörumerki heims á sviði raf- og heimilistækja, sem tryggir mikið og gott vöruúrval, hagstæðustu innkaup sem völ er á með beinum viðskiptum við framleiðendur, og þar af leiðandi bestu mögulegu verð til neytenda. Á sama hátt þá tryggir einnig beint samband við framleiðendur besta mögulega þjónustustig sem völ er á.

Í janúar 2024 hlaut Heimilistæki viðurkenningu fyrir að mælast með ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði árið 2023, samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar 2023. Einnig mældist Heimilistæki næst hæst þeirra verslana sem voru mæld fyrir Íslensku ánægjuvogina 2023. Það er okkur einstakur heiður að þjónusta svona marga ánægða viðskiptavini!

Allar frekari upplýsingar um Heimilistæki ehf má fá í síma 569-1500 eða með því að senda tölvupóst á sala@ht.is

Heimilistæki ehf.
Kt. 470400-3070
Vsk. númer: 75484
Suðurlandsbraut 26
108 Reykjavík
Sími: 569-1500
Fax: 569-1501

 

Smelltu hér til þess að kynna þér Jafnlaunastefnu Heimilistækja 2023

Smelltu hér til þess að skoða Jafnréttisáætlun Heimilistækja 2023-2026